Almennir skilmálar

KAUPSKILMÁLI

Stefnan hjá Seidkarlinn.is er að koma til móts við alla viðskiptavini. Ef viðskiptavinur er ekki fullkomlega ánægður með vöru eða þjónustu sem hefur verið versluð, munum við með öllu móti reyna bæta úr því. Við erum hér fyrst og fremst fyrir okkar viðskiptavini og viljum sýna það í verki að okkur er annt um alla viðskiptavini.

Seiðkarlinn áskilur sér rétt til þess að afgreiða ekki pantanir sem að grunaðar eru til endursölu. Slíkar pantanir verður hætt við og þær endurgreiddar.

AFGREIÐSLUFRESTUR

Við kappkostum það að koma vörunni eins fljótt og hægt er til viðskiptavina okkar. Hins vegar getur verið að í einstaka tilfellum sé vara ekki til á lager, þá munum við hafa samband eins fljótt og auðið er og benda viðskiptavinum okkar á aðrar vörur í staðinn. Viðskiptavinum okkar býðst þá einnig upp á að hætta við pöntunina í heild sinni og fá hana að fullu endurgreidda. Að öllu jöfnu reynum við að koma pöntun þinni út innan sólahrings frá því að hún er greidd að fullu. Engin pöntun er send út fyrr en hún er að fullgreidd.

GREIÐSLUR

Greiðslur fara fram í gegnum Landsbankann hf, millifærslu eða Netgíró.

BANKAMILLIFÆRSLUR

Einfalt er að gera millifærslu í heimabanka.
Notast skal við eftirfarandi upplýsingar,
Reikningsnúmer: 0515-26-011733
Kennitala: 441023-1030 (Seiðkarlinn ehf.)

AFHENDING VÖRU

Allar pantanir eru sendar með pósti að næsta póstboxi nema annað sé samið um. Sendingakosnaður er eftir gjaldskrá Seidkarlinn.is og er sendingarkostnaðurinn greiddur við greiðslu á pöntun. Seidkarlinn.is ber ekki ábyrgð á týndum sendingum eða tjónum sem kann að verða á vörum í flutningi. Eftir að vara er send út frá Seidkarlinn.is er viðkomandi ábyrgur fyrir öllu því tjóni sem kann að verða.

Við sendum pantanir út með DROPP og Íslandspósti

DROPP fer með pakka heim að dyrum og í póstbox um land allt. Pakkar sem fara í póstbox, fara frá okkur í lok dags og er afhendingartími að jafnaði einn dagur að hámarki tveir dagar, eftir að pöntun er lögð inn.
Pakkar á landsbyggðini geta endað á næsta pósthúsi ef heimkeyrsla er ekki í boði fyrir það svæði.

 Íslandspóstur fer með pakka á þau svæði á landsbyggðinni sem eru utan þjónustusvæðis DROPP.

VERÐ Á VÖRUM 

Öll verð eru birt með viðeigandi VSK.

VÖRUSKIL

Vörum sem ekki eru innsiglaðar fást hvorki skilað né skipt. Kaupandi hefur kost á að skila vöru innan 15 daga gegn framvísun kassakvittunar eða pöntunarnúmers. Kaupandi getur þá valið um að fá nýja vöru eða inneign í verslun. Þetta gildir þó aðeins ef varan og umbúðir hennar er í upprunalegu ástandi (óopnaðar). Ef seljandi telur vöru vera gallaða getur hann átt rétt á að fá nýtt eintak svo lengi sem hægt sé að sannreyna að hún sé gölluð.

PERSÓNUVERND

Seidkarlinn.is mun gæta algers trúnaðar við viðskiptavini sína og ábyrgjumst að gefa aldrei neinum upplýsingar um viðskiptavini á nokkurn hátt, hvorki hvað varðar vörukaup, fyrirspurnir, lykilorð, netfang eða annað.

HÖFUNDARÉTTUR OG VÖRUMERKI

Allt efni á vefsvæði Seidkarlinn.is, texti, grafík, lógó, myndir, vörulýsingar, greinar, hnappar og annað sem finnst á síðunni er eign Seiðkarlinn ehf. Atriði sem talin eru upp hér að framan njóta höfundarréttar og verndar lögum samkvæmt.

Skilmálar þessir eru almennir verslunarskilmálar Seiðkarlinn.is og tóku gildi þann 1. september 2024. 

LÖGSAGA OG VARNARÞING

Komi til málshöfðunar milli kaupanda og seljenda um túlkun á skilmála þessa, gildi þeirra og efndar skal reka það fyrir héraðsdóm Reykjavíkur.

ANNAÐ

Ef þú hefur einhverjar spurningar varðandi vörur eða annað, endilega hafðu samband á seidkarlinn@seidkarlinn.is og við reynum að svara sem fyrst.

Seiðkarlinn
Seiðkarlinn ehf.
kt: 441023-1030
Faxafen 14
108 Reykjavík
Sími: 546-0339

Virðisaukaskattsnúmer: 150446