Skip to product information
1 of 1

Arbequina Palacio - Early Harvest Olive Oil 500 ml

Arbequina Palacio - Early Harvest Olive Oil 500 ml

Venjulegt verð 3,500 ISK
Venjulegt verð Útsölu verð 3,500 ISK
Afsláttur Uppselt
m/ vsk

Palacio de los Olivos Arbequina er early harvest extra virgin ólífuolía úr Arbequina-ólífum. Ólífurnar eru tíndar snemma, í október og nóvember, á meðan þær eru enn grænar. Uppskeran gefur minna af olíu en olían verður ferskari, bragðmeiri og ríkari af pólýfenólum. Olían er kaldpressuð og unnin eingöngu með vélrænum aðferðum.

Arbequina-olían er mjúk og fersk með ákafan grænan ávaxtakeim, mildri beiskju og léttu pipraðu eftirbragði. Í ilm og bragði má greina epli, banana og grænar kryddjurtir. Palacio de los Olivos er fjölskyldufyrirtæki í Campo de Calatrava við Almagro í Ciudad Real-héraði á Spáni. Ólífulundirnir standa á eldfjallajarðvegi og öll olían er unnin úr eigin ólífum í eigin pressu.

Eiginleikar

  • Early harvest – ólífur tíndar grænar í október og nóvember
  • Kaldpressuð extra virgin ólífuolía
  • Ein ólífutegund (monovarietal) – 100% Arbequina
  • Úr eigin ólífulundum í Campo de Calatrava á Spáni

Innihald

  • 100% extra virgin ólífuolía úr Arbequina-ólífum (Olea europaea)

Magn: 500 ml. Uppruni: Ciudad Real, Spáni.

Notkun

Nýtur sín best köld: yfir salöt, grænmeti, bakaðan fisk, sjávarrétti, brauð með tómötum og osta. Hentar einnig í bakstur og út á ávaxtasalat eða jógúrt.

Geymsla

Geymist á dimmum og svölum stað með lokið vel skrúfað á. Best er að nota olíuna innan 9–12 mánaða frá opnun, á meðan ferskleikinn er mestur.

Skoða nánar