Dr. Group's Cleansing Foot Pads 10 stk Global Healing
Dr. Group's Cleansing Foot Pads 10 stk Global Healing
Ekki tókst að hlaða
Dr. Group's Cleansing Foot Pads eru hreinsandi fótaplástrar frá Global Healing, þróaðir af Dr. Edward Group og byggðir á áralangri japanskri hefð. Plástrarnir innihalda lífrænt bambus- og viðaredik, jurtir og steinefni og eru settir undir iljarnar fyrir svefn.
Einföld leið til að gera hreinsun að hluta af kvöldrútínunni. Í pokanum eru 10 plástrar – fimm nætur fyrir báða fætur.
Ofangreint byggir á hefðbundinni notkun jurtanna. Ekki er um staðfestar heilsufullyrðingar að ræða.
Innihald
- Túrmalín
- Lífrænt bambusedik
- Lífrænt viðaredik
- Dextrín
- Ametýst
- Lífrænn agaricus-sveppur (Agaricus sp.)
- Sporopollenín
- Lífrænt loquat-lauf (Eriobotrya japonica)
- Lífræn dokudami (Houttuynia cordata)
- Zeólít
Allt náttúruleg og lífræn innihaldsefni, án erfðabreyttra efna.
Magn: 10 plástrar.
Notkun
1. Takið bakpappírinn af einu límblaði og leggið plásturinn, með merkið niður, á miðju límhliðarinnar. 2. Festið plásturinn á miðja iljina nálægt ristinni og þrýstið létt. Endurtakið á hinum fætinum – nota má sokka yfir. 3. Farið að sofa eins og venjulega og hafið plástrana á í 8 klst. 4. Fjarlægið plástrana að morgni, fleygið þeim og þvoið fæturna vel. Plástrana má ekki nota aftur.
Varúð
Eingöngu til útvortis notkunar. Setjið ekki á sár eða erta húð. Hættið notkun ef húðerting kemur fram. Geymið þar sem börn ná ekki til. Barnshafandi konur og konur með barn á brjósti ættu að ráðfæra sig við lækni áður en varan er notuð.
Share
