Skip to product information
1 of 1

Shilajit 40gr Mountaindrop

Shilajit 40gr Mountaindrop

Venjulegt verð 16,990 ISK
Venjulegt verð Útsölu verð 16,990 ISK
Afsláttur Uppselt
m/ vsk

Original Altai frá Mountaindrop er hreint shilajit-resín úr Altai-fjöllum, safnað í meira en 3.000 metra hæð. Resínið er handsafnað með hefðbundnum hætti og hreinsað varlega við lægri hita en 40 °C til að varðveita náttúrulega samsetningu þess.

Shilajit (mumiyo) er dökkt, kvoðukennt efni sem myndast á löngum tíma úr niðurbrotnum plöntuleifum í klettum hárra fjalla. Það inniheldur fúlvínsýru, húmínsýru og yfir 85 snefilsteinefni og hefur lengi verið notað í hefðbundinni ayurveda-fræði. Hver framleiðslulota er prófuð af óháðri rannsóknarstofu fyrir þungmálmum og örverum.

Eiginleikar

  • 100% hreint Altai shilajit-resín
  • Handsafnað í yfir 3.000 m hæð
  • Hreinsað varlega undir 40 °C
  • Hver lota prófuð af óháðri rannsóknarstofu
  • Mæliskeið fylgir

Ofangreint byggir á hefðbundinni notkun. Ekki er um staðfestar heilsufullyrðingar að ræða.

Innihald

  • 100% hreint shilajit-resín (mumiyo) úr Altai-fjöllum

Nettóþyngd 40 g – um 65–200 skammtar miðað við 0,2–0,6 g á dag.

Notkun

Leysið 0,2–0,6 g (á stærð við baun) upp í volgu vatni, te, mjólk eða öðrum drykk, ekki heitari en 40 °C, einu sinni til tvisvar á dag – helst á fastandi maga að morgni. Mælt er með notkun í að minnsta kosti 3 vikur og viku hléi eftir hverjar 3 vikur. Geymið við stofuhita og fjarri sólarljósi.

Varúð

Neytið ekki meira af vörunni en ráðlögðum dagskammti nemur. Fæðubótarefni koma ekki í stað fjölbreyttrar fæðu. Geymið þar sem börn hvorki sjá né ná til. Barnshafandi konur, konur með barn á brjósti og þeir sem eru á lyfjum ættu að ráðfæra sig við lækni áður en varan er notuð.

Skoða nánar