Picual Palacio Early Harvest Olive Oil 500 ml
Picual Palacio Early Harvest Olive Oil 500 ml
Ekki tókst að hlaða
Palacio de los Olivos Picual er early harvest extra virgin ólífuolía úr Picual-ólífum. Ólífurnar eru tíndar snemma, í október og nóvember, á meðan þær eru enn grænar. Uppskeran gefur minna af olíu en olían verður ferskari, bragðmeiri og ríkari af pólýfenólum. Olían er kaldpressuð og unnin eingöngu með vélrænum aðferðum.
Picual-olían er kröftug og fersk með ákafan grænan ávaxtakeim og jafnvæga beiskju og pipraðan keim. Í ilm og bragði má greina tómatplöntu, ætiþistil, grænt epli og ferskar kryddjurtir. Palacio de los Olivos er fjölskyldufyrirtæki í Campo de Calatrava við Almagro í Ciudad Real-héraði á Spáni. Ólífulundirnir standa á eldfjallajarðvegi og öll olían er unnin úr eigin ólífum í eigin pressu.
Eiginleikar
- Early harvest – ólífur tíndar grænar í október og nóvember
- Kaldpressuð extra virgin ólífuolía
- Ein ólífutegund (monovarietal) – 100% Picual
- Úr eigin ólífulundum í Campo de Calatrava á Spáni
Innihald
- 100% extra virgin ólífuolía úr Picual-ólífum (Olea europaea)
Magn: 500 ml. Uppruni: Ciudad Real, Spáni.
Notkun
Nýtur sín best köld: með brauði, í salöt, tómatrétti, túnfisk- og ansjósurétti, með grænmeti, belgjurtum og elduðu kjöti.
Geymsla
Geymist á dimmum og svölum stað með lokið vel skrúfað á. Best er að nota olíuna innan 9–12 mánaða frá opnun, á meðan ferskleikinn er mestur.
Share
