Lífrænt Valerian 59ml Global Healing
Lífrænt Valerian 59ml Global Healing
Ekki tókst að hlaða
Global Healing Valerian er lífrænn fljótandi útdráttur úr garðabrúðurót, jurt sem hefur verið notuð frá dögum Forn-Grikkja til að stuðla að slökun og værum svefni. Unnið með Raw Herbal Extract™ aðferð Global Healing.
Hjálpar til við að róa andlega og líkamlega spennu svo auðveldara sé að sofna og vakna úthvíldur – án þess að valda slappleika daginn eftir. Áfengislaust, í 59 ml glerflösku með dropateljara.
Ofangreint byggir á hefðbundinni notkun jurtanna. Ekki er um staðfestar heilsufullyrðingar að ræða.
Innihald
- Lífræn garðabrúða / valeríana (Valeriana officinalis)
Aukaefni: lífrænt jurtaglýserín, þríeimað „biophotonic“ strúktúrerað vatn, Ormus Supercharged Minerals.
Magn: 59 ml (2 fl oz) – um 60 skammtar.
Notkun
Hristið flöskuna vel fyrir notkun. Takið 1 ml tvisvar á dag, t.d. síðdegis og aftur að kvöldi fyrir svefn, eða samkvæmt ráðleggingum heilbrigðisstarfsmanns.
Varúð
Neytið ekki meira af vörunni en ráðlögðum dagskammti nemur. Fæðubótarefni koma ekki í stað fjölbreyttrar fæðu. Geymið þar sem börn hvorki sjá né ná til. Barnshafandi konur, konur með barn á brjósti og þeir sem eru á lyfjum ættu að ráðfæra sig við lækni áður en varan er notuð. Getur valdið syfju – akið ekki eða stjórnið vélum eftir inntöku. Neytið ekki samhliða áfengi eða svefnlyfjum.
Share
