Hrátt Hunang með Drottningargeli 450g Seiðkarlinn
Hrátt Hunang með Drottningargeli 450g Seiðkarlinn
Ekki tókst að hlaða framboði á afhendingum
Hversdags hunang
Hrátt hunang með drottningargeli – 450g
Lýsing
Hrátt akasíublómahunang (Robinia pseudoacacia) frá Serbíu með drottningargeli – næringarríku fæðunni sem býflugurnar framleiða handa drottningunni og lirfum búsins. Milda akasíuhunangið ber drottningargelið vel og útkoman er mjúk sæta með ferskum, örlítið beiskum keim.
Hunangið er ógerilsneytt, kaldunnið og aðeins grófsigtað – þannig varðveitast náttúruleg ensím, frjókorn, própólis og bývax í sínu upprunalega formi.
Helstu eiginleikar
• Hrátt, ógerilsneytt og kaldunnið
• 0,5% drottningargel (royal jelly)
• Milt akasíubragð – helst fljótandi lengi
• Enginn viðbættur sykur, síróp eða aukaefni
• 100% náttúrulegt
Innihald
Akasíublómahunang 99,5%, drottningargel 0,5%.
Næringargildi (fyrir 100g)
• Orka: 1292 kJ / 308,8 kcal
• Fita: <0,01 g (þar af mettuð 0 g)
• Kolvetni: 80,3 g (þar af sykur 80 g)
• Prótein: 0,3 g
• Salt: <0,01 g
Notkunarleiðbeiningar
Ein teskeið á dag beint af skeiðinni eða út í te, skyr og hafragraut. Geymist við stofuhita, fjarri beinu sólarljósi.
Varúð:
Ekki gefa börnum yngri en 12 mánaða. Hunangið er grófsigtað og getur því innihaldið snefilagnir af frjóum, própólis og bývaxi. Þeir sem eru með ofnæmi fyrir býflugnaafurðum, frjókornum eða astma ættu að fara varlega með drottningargel.
Upprunaland: Serbía.
Deila
