Sædögg Húðtólgur 60g Seiðkarlinn
Sædögg Húðtólgur 60g Seiðkarlinn
Ekki tókst að hlaða framboði á afhendingum
Sædögg er handgert húðsmyrsl úr hreinni nautatólg með jómfrúarólífuolíu og þykkni úr appelsínu og rósmaríni. Ferskur sítrus- og jurtailmur einkennir smyrslið, sem bráðnar við líkamshita og smýgur vel inn í húðina.
Eiginleikar
- 100% náttúrulegt — engin rotvarnarefni og engin gerviefni
- Sjálfbært og umhverfisvænt hráefni sem annars færi til spillis
- Tólg er náttúrulega rík af fituleysanlegum A-, D-, E- og K-vítamínum
- Hentar öllum húðgerðum, sérstaklega þurri og viðkvæmri húð
- Frískandi ilmur af appelsínu og rósmaríni
Ofangreint byggir á hefðbundinni notkun. Ekki er um staðfestar heilsufullyrðingar að ræða.
Innihald
- Nautatólg (Bos taurus)
- Jómfrúar ólífuolía (Olea europaea)
- Appelsínuþykkni (Citrus sinensis)
- Rósmarínþykkni (Rosmarinus officinalis)
Nettóþyngd 60 g.
Notkun
Berðu örlítið magn á hreina húð og nuddaðu varlega inn. Smyrslið bráðnar við líkamshita svo lítið magn dugar langt. Má nota á andlit, hendur og líkama.
Varúð
Eingöngu til útvortis notkunar. Sítrusþykkni getur aukið ljósnæmi húðar — forðist sterkt sólarljós strax eftir notkun. Barnshafandi konur ættu að ráðfæra sig við lækni áður en vörur með rósmaríni eru notaðar. Forðist snertingu við augu. Hættu notkun ef erting kemur fram. Geymið á þurrum og svölum stað, þar sem börn hvorki sjá né ná til.
Deila
