Farðu í vöruupplýsingar
1 af 2

Moringa 450mg 60 hylki Seiðkarlinn

Moringa 450mg 60 hylki Seiðkarlinn

Venjulegt verð 3,990 ISK
Venjulegt verð 0 ISK Útsöluverð 3,990 ISK
Útsala Uppselt
Skattar innifaldir.

Moringa í hylkjum — hreint lauf af Moringa oleifera og ekkert annað. Hvert hylki inniheldur 450 mg og hylkin sjálf eru úr jurtabeðmi.

Moringa oleifera er hraðvaxta tré sem á uppruna sinn í Norður-Indlandi og vex í dag víða um hitabeltið. Laufið hefur verið nýtt öldum saman í matargerð og hefðbundinni jurtanotkun, og tréð gengur víða undir heitinu „kraftaverkatréð“.

Mögulegur heilsufarslegur ávinningur

  • Laufið er borðað sem grænmeti í Indlandi og víða í Afríku og telst því heilfæða, ekki einangrað efni
  • Löng hefð í ayurveda, þar sem moringa er meðal elstu skráðu jurta
  • Vinsælt hjá þeim sem vilja bæta grænu í mataræðið án þess að breyta máltíðunum
  • Tréð hefur verið notað í þróunarstarfi víða um heim vegna þess hversu næringarríkt laufið þykir miðað við hversu auðveldlega það vex

Ofangreint byggir á hefðbundinni notkun og rannsóknum sem enn standa yfir. Ekki er um staðfestar heilsufullyrðingar að ræða.

Innihald

  • Moringa (Moringa oleifera) lauf — 450 mg í hverju hylki
  • Hylki úr jurtabeðmi

Nettóþyngd 27 g — 60 hylki.

Notkun

Ráðlagður dagskammtur er 2–4 hylki á dag með vatni. Geymið vöruna á þurrum stað við stofuhita.

Varúð

Neytið ekki meira af vörunni en ráðlögðum dagskammti nemur. Fæðubótarefni koma ekki í stað fjölbreyttrar fæðu. Geymið þar sem börn hvorki sjá né ná til. Barnshafandi konur, konur með barn á brjósti og þeir sem eru á lyfjum ættu að ráðfæra sig við lækni áður en varan er notuð.

Skoða allar upplýsingar