Lung Health 30ml Global Healing
Lung Health 30ml Global Healing
Ekki tókst að hlaða framboði á afhendingum
Global Healing Lung Health er lífrænn munnúði úr jurtum og ilmkjarnaolíum sem styður við heilbrigð öndunarfæri og létta öndun. Piparmynta, tröllatré, kóngaljós, tulsi og sítrónumelissa hafa um aldir verið notuð til að opna og hreinsa öndunarveginn.
Án alkóhóls, rotvarnar- og gerviefna og hentar bæði fullorðnum og börnum frá 3 ára aldri. 30 ml glerflaska með úðadælu.
Ofangreint byggir á hefðbundinni notkun jurtanna. Ekki er um staðfestar heilsufullyrðingar að ræða.
Innihald
- Lífræn piparmynta (Mentha × piperita)
- Lífrænt tulsi / heilög basilíka (Ocimum tenuiflorum)
- Lífrænt tröllatré (Eucalyptus globulus)
- Lífrænt kóngaljós (Verbascum thapsus)
- Lífræn sítrónumelissa (Melissa officinalis)
- Lífræn ylliber (Sambucus nigra)
- Lífræn appelsína (Citrus sinensis)
- Lífræn skessujurt (Levisticum officinale)
- Lífræn piparmyntuolía (Mentha × piperita)
- Lífrænt mentól
Aukaefni: lífrænt jurtaglýserín, þríeimað „biophotonic“ strúktúrerað vatn, Ormus Supercharged Minerals.
Magn: 30 ml (1 fl oz) – um 42 skammtar fyrir fullorðna / 84 fyrir börn.
Notkun
Úðið í munninn, andið djúpt að ykkur þrisvar og kyngið svo afganginum. Fullorðnir og börn 6 ára og eldri: 6 úðar þrisvar á dag. Börn 3–6 ára: 3 úðar þrisvar á dag. Eða samkvæmt ráðleggingum heilbrigðisstarfsmanns.
Varúð
Neytið ekki meira af vörunni en ráðlögðum dagskammti nemur. Fæðubótarefni koma ekki í stað fjölbreyttrar fæðu. Geymið þar sem börn hvorki sjá né ná til. Barnshafandi konur, konur með barn á brjósti og þeir sem eru á lyfjum ættu að ráðfæra sig við lækni áður en varan er notuð. Ekki ætlað börnum yngri en 3 ára.
Deila
