Keiths 100% Pure CACAO 170g
Keiths 100% Pure CACAO 170g
Ekki tókst að hlaða
Keith’s Ceremonial Cacao – 100% Hreint Seremóníu Kakó
100% seremóníu kakó
Innihald: 100% steinmalaðar kakóbaunir
Uppruni:
Keith’s Ceremonial Cacao er framleitt úr vandlega völdum kakóbaunum frá sjálfbærum plantekrum í Mið- og Suður-Ameríku. Kakóið er ræktað í náttúrulegu vistkerfi regnskóga þar sem virðing er borin fyrir náttúru, jarðvegi og hefðbundnum ræktunaraðferðum, án notkunar skaðlegra efna. Framleiðslan byggir á sanngjörnum viðskiptum og stuðningi við staðbundin samfélög.
Allt kakóið er handgert í samfélaginu San Marcos la Laguna í Gvatemala þar sem framleiðslan styður yfir 30 fjölskyldur.
Plantekra: Sjálfbærar plantekrur í Mið- og Suður-Ameríku og Gvatemala
Rekjanleiki: Kakó keypt í gegnum trausta birgja með fullum rekjanleika
Kakótegund: Heirloom og Fino de Aroma-afbrigði
Ristun: Létt og stutt
Vinnsla: Steinmöluð, hvorki conched né temprað
Uppskera: Breytileg eftir lotu
Bragð: Djúpt kakó, jarðtónar, mild beiskja, örlítið hnetukennt
Beiskleiki: Miðlungs
Útlit: Í kubbum eða flögum. Ljósleitir blettir geta myndast á yfirborði vegna kristöllunar kakósmjörs sem er eðlilegt ferli í hreinu kakói
Umbúðir: Endurvinnanlegar pappírsumbúðir
⸻
AF HVERJU HREINT SEREMÓNÍU KAKÓ?
Seremóníu kakó er næringarríkur og lífgefandi drykkur sem getur komið í stað kaffis og veitt stöðuga, náttúrulega orku án taugaspennu. Kakó styður við starfsemi taugakerfis, hjarta og hugræns jafnvægis og er ríkt af flavóníðum og andoxunarefnum sem styrkja ónæmiskerfið.
Kakó inniheldur einnig tryptófan sem stuðlar að myndun serótóníns og getur aukið vellíðan og jákvætt hugarástand. Að auki inniheldur það boðefni eins og anandamíð og endókannabínóíð sem tengjast sælutilfinningu, ró og einbeitingu.
Keith’s Ceremonial Cacao hentar jafnt til morgunrútínu, hugleiðslu, kakóhringja, andlegrar vinnu eða sem hluti af heilsusamlegu mataræði.
⸻
UNDIRBÚNINGUR KAKÓRITÚALS
Saxaðu ca. 20 g af kakói með hníf.
Hitaðu upp vatn (180–200 ml) eða jurtadrykk að eigin vali.
Settu saxað kakó í pott og bættu smám saman við heitu vatni (ekki sjóðandi).
Hrærðu þar til kakóið leysist upp.
Bættu við afgangnum af vatninu.
Ef pottur er ekki í boði, má nota blandara eða mjólkurskúmara.
Drykkurinn er náttúrulega beiskur, en hægt er að bæta við döðlu, hunangi eða örlitlum sykri.
Fyrir aukna virkni má bæta við kanil, kardimommu, chili, ashwagandha, túrmerik eða engifer.
⸻
Næringargildi í 100 g
Orka: 2700 kJ / 650 kcal
Fita: 50 g (þar af mettuð: 32 g)
Kolvetni: 28 g (þar af sykur: 1 g)
Trefjar: 14 g
Prótein: 13 g
Salt: 0,01 g
Kalíum: 750 mg
Magnesíum: 220 mg
Járn: 2,5 mg
(Gildi geta verið breytileg eftir uppskeru.)
⸻
Notkunarleiðbeiningar
Þó almennt sé mælt með „seremóníuskammti“ upp á 40 g, mælum við með að fara ekki yfir 30 g á dag. Við daglega notkun er hentugast að miða við 10–15 g.
Þar sem kakóið er 100% hreinn kakómassi veitir það mikla orku og því mikilvægt að neyta þess með meðvitund og í hófi sem hluta af fjölbreyttu mataræði.
Ráðfærðu þig við sérfræðing ef þú ert ólétt/ur eða með alvarleg hjartavandamál.
Örvandi áhrif kakós hefjast yfirleitt um 30 mínútum eftir neyslu.
Mælt er með góðri vatnsdrykkju fyrir og eftir neyslu.
⸻
ALLAR VÖRUR KEITH’S ERU:
Án lísitíns, mjólkur, glútens, bragð- og rotvarnarefna. Vegan.
Deila
