Gott vandað úrval og snögg þjónusta
Natural Sisal Body Brush (Hard) FSC Ecobath
Natural Sisal Body Brush (Hard) FSC Ecobath
Ekki tókst að hlaða framboði á afhendingum
Harður líkamsbursti úr náttúrulegum sísaltrefjum með skafti úr FSC-vottuðum beykiviði. Stíf hárin henta vel í þurrburstun sem fjarlægir dauðar húðfrumur, örvar blóðrás og sogæðakerfið og skilur húðina eftir slétta. Skaftið er laust svo hægt er að nota burstann sem handbursta.
Efni
- Hár: 100% náttúrulegar sísaltrefjar (Agave sisalana)
- Skaft: FSC-vottaður beykiviður
Notkun
Burstið þurra húðina með löngum strokum í átt að hjartanu, byrjið á fótum. Notið fyrir sturtu, 3–5 mínútur í senn.
Umhirða
Skolið burstann eftir notkun og látið hann þorna á loftgóðum stað. Notið ekki á erta, sára eða sólbrennda húð.
