Farðu í vöruupplýsingar
1 af 1

Appalachian Valley Fyrir Smærri Hundategundir - Dádýr 2kg Taste Of The Wild

Appalachian Valley Fyrir Smærri Hundategundir - Dádýr 2kg Taste Of The Wild

Venjulegt verð 4.700 ISK
Venjulegt verð Útsöluverð 4.700 ISK
Útsala Uppselt
Skattar innifaldir.

Appalachian Valley Adult Small Breed – Dádýr 2 kg

Appalachian Valley er kornlaust og próteinríkt þurrfóður sérstaklega hannað fyrir fullorðna smáhunda. Uppskriftin byggir á villtu dádýrakjöti sem fyrsta innihaldsefni ásamt kjúklingabaunum og öðrum vel völdum hráefnum sem styðja við jafnvægi og meltingu.

Auðmeltanlegt dádýrakjöt og smærri fóðuragnir gera þessa formúlu einstaklega hentuga fyrir smærri tegundir – bæði fyrir maga og tennur. Prótein- og fiturík samsetning veitir þá orku sem virkir smáhundar þurfa daglega, á meðan trefjar styðja við heilbrigða meltingu.

Dádýrakjöt er magurt, próteinríkt og náttúrulega lágt í fitu. Það er góð uppspretta B-vítamína, sinks, fosfórs og járns sem gegna mikilvægu hlutverki í efnaskiptum, blóðmyndun og almennri líkamsstarfsemi. Þó formúlan sé sérstaklega þróuð fyrir smærri tegundir hentar hún einnig fullorðnum hundum af öllum stærðum sem kjósa minni fóðuragnir.

Taste of the Wild er alþjóðlega þekktur framleiðandi kornlausra gæludýrafóðra og leggur áherslu á rekjanleg hráefni og næringarfræðilega vel samsettar uppskriftir.


Helstu eiginleikar

·       Fyrsta innihaldsefni er villt dádýrakjöt

·       Smærri fóðuragnir sem henta smærri tegundum

·       Prótein- og orkurík uppskrift

·       Kornlaust – ekkert hveiti og engin hrísgrjón

·       Engar maís-, soja- eða aðrar kornafurðir

·       Engin litar- eða gerviefni

·       Engin viðbætt eða óþarfa innihaldsefni

 

Skoða allar upplýsingar