Farðu í vöruupplýsingar
1 af 1

Wild Caught Fish Roe 180 hylki Nutriest

Wild Caught Fish Roe 180 hylki Nutriest

Venjulegt verð 9,990 ISK
Venjulegt verð 0 ISK Útsöluverð 9,990 ISK
Útsala Uppselt
Skattar innifaldir.

Villt fiskihrogn

Fiskihrogn hafa um aldir verið metin sem ein næringarríkasta fæða hafsins. Hrogn innihalda allt sem þarf til að næra fyrstu stig lífsins og eru því rík af hágæða próteini, sjávarfitu og snefilefnum. Nutriest Wild Caught Fish Roe er einfaldlega 100% villt veidd hoki-hrogn í hylkjum – engin löng innihaldslýsing, bara heilfæða.

Hoki-hrogn innihalda náttúrulega langkeðju omega-3 fitusýrurnar DHA og EPA bundnar fosfólípíðum, sem líkaminn tekur auðveldlega upp og nýtir. DHA stuðlar að eðlilegri heilastarfsemi og sjón. Hrognin eru einnig náttúruleg uppspretta B12-vítamíns og selens – B12 stuðlar að eðlilegum orkuefnaskiptum og dregur úr þreytu, en selen styður við starfsemi skjaldkirtils og ónæmiskerfis og verndar frumur gegn oxunarálagi.

• Villt veidd hoki-hrogn
• Frostþurrkað til að varðveita næringarefnin
• Omega-3 (DHA og EPA) á fosfólípíðformi
• Styður við heila, sjón og taugakerfi
• Náttúruleg uppspretta B12-vítamíns og selens
• Ekkert lýsisbragð, engin fylliefni

Innihald:

  • Frostþurrkuð villt fiskihrogn – hoki (Macruronus novaezelandiae) – 100%
  • Hylki úr nautagelatíni

Hvert hylki inniheldur 500 mg.
180 hylki – 30 skammtar í glasi. 6 hylki gefa 3.000 mg af villtum fiskihrognum.

Notkun:
6 hylki daglega eða samkvæmt leiðbeiningum heilbrigðisstarfsmanns. Fyrir betri upptöku skal taka 3 hylki 10 mínútum fyrir hverja máltíð.

Varúð:
Inniheldur fisk – hentar ekki þeim sem eru með fiskiofnæmi. Þungaðar konur og konur með barn á brjósti ættu að ráðfæra sig við lækni fyrir notkun. Fæðubótarefni koma ekki í stað fjölbreyttrar fæðu. Ekki skal neyta meira en ráðlagður dagskammtur segir til um. Geymist þar sem börn ná ekki til.

Skoða allar upplýsingar