Hrátt Akasíublóma Hunang 900g Seiðkarlinn
Hrátt Akasíublóma Hunang 900g Seiðkarlinn
Ekki tókst að hlaða
Hrátt akasíublóma hunang – 900g
Lýsing
Ljósgyllt og tært hunang sem býflugurnar safna úr blómum akasíutrésins (Robinia pseudoacacia) í Serbíu. Bragðið er milt, fínlegt og blómlegt með mjúkri, hreinni sætu. Vegna hás frúktósainnihalds helst akasíuhunang fljótandi mun lengur en flestar aðrar tegundir og kristallast seint.
Hunangið er ógerilsneytt, kaldunnið og aðeins grófsigtað – þannig varðveitast náttúruleg ensím, frjókorn, própólis og bývax í sínu upprunalega formi.
Helstu eiginleikar
• Hrátt, ógerilsneytt og kaldunnið
• Milt og fínlegt blómabragð
• Helst fljótandi lengi – kristallast seint
• Enginn viðbættur sykur, síróp eða aukaefni
• 100% náttúrulegt
Innihald
Akasíublómahunang 100%.
Næringargildi (fyrir 100g)
• Orka: 1393,5 kJ / 331,8 kcal
• Fita: 0 g (þar af mettuð 0 g)
• Kolvetni: 81,14 g (þar af sykur 76,48 g)
• Prótein: 0,37 g
• Salt: 0 g
Notkunarleiðbeiningar
Frábært út í te og kaffi, á brauð og skyr, í bakstur, sósur og dressingar eða sem náttúruleg sæta. Geymist við stofuhita, fjarri beinu sólarljósi.
Varúð:
Ekki gefa börnum yngri en 12 mánaða. Hunangið er grófsigtað og getur því innihaldið snefilagnir af frjóum, própólis og bývaxi.
Upprunaland: Serbía.
Share
