Skip to product information
1 of 2

Hrátt Hunang með Býbrauði 450g Seiðkarlinn

Hrátt Hunang með Býbrauði 450g Seiðkarlinn

Venjulegt verð 3.990 ISK
Venjulegt verð 0 ISK Útsölu verð 3.990 ISK
Afsláttur Uppselt
m/ vsk

Hversdags hunang

Hrátt hunang með býbrauði – 450g

Lýsing
Hrátt engjablómahunang frá Serbíu með býbrauði (perga) – frjókornum sem býflugurnar pakka í vaxköku og láta gerjast með ensímum og mjólkursýrugerlum. Við gerjunina verða næringarefnin aðgengilegri en í hráum frjókornum og hunangið fær ríkara bragð með mildri sýru.

Hunangið er ógerilsneytt, kaldunnið og aðeins grófsigtað – þannig varðveitast náttúruleg ensím, frjókorn, própólis og bývax í sínu upprunalega formi.


Helstu eiginleikar

• Hrátt, ógerilsneytt og kaldunnið
• 2% býbrauð (perga) – gerjuð frjókorn
• Ríkt blómabragð með mildri sýru
• Enginn viðbættur sykur, síróp eða aukaefni
• 100% náttúrulegt


Innihald

Engjablómahunang 98%, býbrauð 2%.


Næringargildi (fyrir 100g)

• Orka: 1318 kJ / 315 kcal
• Fita: <0,1 g (þar af mettuð 0 g)
• Kolvetni: 79,2 g (þar af sykur 78,6 g)
• Prótein: 0,8 g
• Salt: <0,01 g


Notkunarleiðbeiningar

Ein teskeið á dag beint af skeiðinni, út í te, á brauð, í skyr eða hafragraut. Geymist við stofuhita, fjarri beinu sólarljósi.

Varúð:
Ekki gefa börnum yngri en 12 mánaða. Hunangið er grófsigtað og getur því innihaldið snefilagnir af frjóum, própólis og bývaxi. Þeir sem eru með ofnæmi fyrir frjókornum eða býflugnaafurðum ættu að fara varlega.


Upprunaland: Serbía.

Skoða nánar