Líkamssápu Áfylling Eucalyptus Lekker 330ml
Líkamssápu Áfylling Eucalyptus Lekker 330ml
Ekki tókst að hlaða
Body Wash Refill frá The Lekker Company – áfyllingardós af líkamssápu með ferskum tröllatrésilm (eucalyptus). Spa-stund í dós.
Sápan er úr 100% náttúrulegum innihaldsefnum, freyðir vel og skilur húðina hreina og mjúka – án klístraðrar eða strekktrar tilfinningar. Dósin er úr endurvinnanlegu áli og kemur í stað plastflöskunnar.
Athugið: Áfyllingardósin þarf Lekker brúsa til að opnast. Ef þú átt ekki brúsa þarftu byrjendasettið – Líkamssápa Endurfyllanleg.
Af hverju þú vilt þessa sápu
- 100% náttúrulegur uppruni innihaldsefna og vegan
- Ferskur tröllatrésilmur úr ilmkjarnaolíu
- Milt hreinsikerfi úr jurtaríkinu – engin örplöst
- 330 ml í endurvinnanlegri áldós
- Hentar öllum húðgerðum
Innihald (INCI)
Aqua, Coco-Glucoside, Glycerin, Sodium Coco-Sulfate, Eucalyptus Globulus Oil, Xanthan Gum, Triethyl Citrate, Caprylyl Glycol, Phenylpropanol, Lactic Acid, Limonene*, Pinene*
*náttúruleg ofnæmisvaldandi efni sem koma úr ilmkjarnaolíunni sjálfri.
Notkun
- Opnaðu Lekker brúsann og settu dósina í hann.
- Fjarlægðu pappaskífuna ofan af dósinni.
- Snúðu þar til þú heyrir „POPP“.
- Lokaðu brúsanum alveg og skrúfaðu pumpuna á.
- Nuddaðu sápunni í raka húð og skolaðu vel af.
Varúð
Eingöngu til útvortis notkunar. Forðist snertingu við augu – skolið vel með vatni ef sápa berst í augu.
Share
