Vanaró Húðtólgur 60g Seiðkarlinn
Vanaró Húðtólgur 60g Seiðkarlinn
Ekki tókst að hlaða
Vanaró er handgert húðsmyrsl úr hreinni nautatólg sem blandað er jómfrúarólífuolíu, vanilluþykkni og CBD hampi. Tólg hefur verið notuð á húð í aldaraðir og fitusýrusamsetning hennar líkist þeirri fitu sem húðin framleiðir sjálf, svo smyrslið smýgur vel inn án þess að skilja eftir klístraða filmu.
Eiginleikar
- 100% náttúrulegt — engin rotvarnarefni og engin gerviefni
- Sjálfbært og umhverfisvænt hráefni sem annars færi til spillis
- Tólg er náttúrulega rík af fituleysanlegum A-, D-, E- og K-vítamínum
- Hentar öllum húðgerðum, sérstaklega þurri og viðkvæmri húð
- Mild vanilluangan úr vanilluþykkni
Ofangreint byggir á hefðbundinni notkun. Ekki er um staðfestar heilsufullyrðingar að ræða.
Innihald
- Nautatólg (Bos taurus)
- Jómfrúar ólífuolía (Olea europaea)
- Vanilluþykkni (Vanilla planifolia)
- CBD hampur (Cannabis sativa)
Nettóþyngd 60 g.
Notkun
Berðu örlítið magn á hreina húð og nuddaðu varlega inn. Smyrslið bráðnar við líkamshita svo lítið magn dugar langt. Má nota á andlit, hendur og líkama.
Varúð
Eingöngu til útvortis notkunar. Varan inniheldur hampútdrátt og er ekki ætluð barnshafandi konum eða konum með barn á brjósti. Forðist snertingu við augu. Hættu notkun ef erting kemur fram. Geymið á þurrum og svölum stað, þar sem börn hvorki sjá né ná til.
Share
